Fyrir 4
2½ dl hunangsmelóna
2½ dl perur
2½ dl epli
2½ dl bláber
1¼ dl appelsínusafi, hreinn
2 tsk fersk mynta, söxuð
2 tsk sítrónusafi, hreinn
2 tsk hunang
Setjið appelsínusafa, sítrónusafa, hunang og myntu í matvinnsluvél og blandið.
Skerið melónu, perur og epli í teninga. Blandið saman melónu, perum, eplum og bláberjum í stóra skál. Hellið dressingunni yfir og blandið varlega saman við. Kælið í kæliskáp fram að því að salatið er borið fram.
Í uppskrift: ca 0 mg Phe
Í skammti: ca 0 mg Phe